Velkomin
14.01.2006 10:05:02 / 1100cc

Er að spá í að flytja mig...

Ég er að spá í að flytja mig um bloggsvæði...

http://www.123.is/1100cc

Kíkið og segið mér hvað ykkur finnst.

Kveðja Inda


» 3 hafa sagt sína skoðun

11.01.2006 17:55:52 / 1100cc

Tæma tunnuna....

Jæja....ekki ætla ég að gerast svo gróf að segja að andlega lægðin mín sé farin fyrir bí....ó nei!:$

Ég fór út að hjóla fyrir nákvæmlega viku síðan.....skrapp í Garðinn með Eddu og co....voða gaman,  það bjargaði andlegri geðheilsu minni þá vikuna:)

Frumburður minn hann Alexander er orðin 12 ára.....átti afmæli þann 8 janúar sl. Hann verður farin að heiman áður en ég veit af:)

Ótrúlega margt sem fer í taugarnar á mér núna.....um daginn gerði vitlaust verður hér í borginni og út um allt land....þar á meðal í Skagafirði, gerði nú svo snarvitlaust þar að annað mannst nú ekki í skagfirskum minnum.....reyndar var veðrið mun verra upp á Skörðum hjá okkur en hjá lálendisliðinu:) Heyvagninn hjá Bigga fauk eina 25 metra og hellingur af járni fór beint til andskotans.

En já...svo ég komi að kveininu....málið er að þegar ég kom í bæinn.....í hvassviðri og rigningu þá mætti maður fljúgandi jólatréum á öðru hverju götuhorni....!!! HVAÐA HÁLVITAR SETJA JÓLATRÉIN ÚT Í SVONA VEÐRI???8| Döhh....gerir ekkert annað en að rispa bílinn minn og valda árekstrum á Miklubrautinni þegar fólk reynir í dauðans ofboði að stíma bílum sínum frá helvítis jólatrjánum.....þannig plís kæru lesendur....næsta ár...ekki setja jólatréið út ef það er stormviðvörun í gangi fyrir næsta sólahring....

Annað mál á dagskrá....umferðin.

Var að keyra í morgun og heyrði veðurfræðinginn á  Bylgjunni tala um að það sé eins og Reykvíkingar misstu getuna til að keyra ef það kemur slæmt færi......það lá við að ég argaði halelúja....mikið innilega er ég sammála honum....fíflunum fjölgar við hvert snjókorn sem fellur af himni....

Þjóðvegirnir og ljósin.

Ótrúlega margir sem eru að keyra ú á landi sem KUNNA ekki að nota háu og lágu ljósin....það er eins og það sé sumum algjörlega ofviða að fatta að það á að lækka lágu ljósin þegar mætt er bíl og lækka ljósin þegar einhver tekur frammúr....hvaða asni fattar ekki að það er VONT að mæta bíl með öll ljós upptendruð eins og ofskreytt jólatré....mikið rosalega fer þetta í skapið á mér.....

Hringtorg..

Var á leiðinni heim áðan úr sjúkraþjálfun.....illt í hausnum og slæm í skapinu.....kem að Hringtorginu við Suðurgötuna og HVÆS.....hver gaf þessum kellingum bílpróf eiginlega og hvað eru þær að atast í umferðinni ef þær kunna ekki einu sinni að keyra í gegnum eitt skitið hringtorg?? Ein þarna áðan, sem stoppaði allt....sat bara stjörf og nagaði neglurnar.....hentugur staður!! Djöfull langaði mig að rjúka til hennar, henda henni út úr bílnum og færa bílinn.....hún hefði sennilega hring á lögguna og kært mig fyrir líkamsárás og bílstuld svo ég lét það eiga sig....bölvaði í hljóði og keyrði jeppann upp á torgið til að sleppa úr þessari teppu....fékk sennilega nokkra putta á eftir það og orð sem fala í sér.....djöfulsins frekjur þessir jeppamenn.

Til að kóróna allt saman....

Fór í læknamat í dag og þvílíkar spurningar!!!

Lögfræðingurinn: Hvernig ertu í skapinu?

Ég: þa fer eftir ýmsu...!

Hann: Ertu erfið í sambúð?

Ég: Já, ábyggilega...!

Hann: áttu systkini?

Ég: já!

Hann: Eru foreldrar þínir á lífi...?

Ég: Já, faðir minn!

hann: Ekki mamma þín?

Ég: nei!

Hann: hvenær dó hún?

Ég: 1977

Hann: Hvernig dó hún?

Ég: Kemur þér það við? og kemur það minni heilsu við hvernig hún dó?

Hann: (skömmustulegur) Ha....uhh...ehh...nei.

Ég: Er ekki ráð að spurja spurninga sem snerta líkalegt ástand mitt?

Hann: Jú....bjóstu á Egilstöðum sem barn...?

Ég:  Já, en hvað kemur það málinu við?

Hann: Ja, fyrirgefðu...við verðum bara að vera svona aðgansharðir!!

Ég: OK.

Sénsagt....líkamlegt ástand mitt var metið af mönnum sem höfðu meiri áhuga á að vita um dauða móðir minnar og hvar ég bjó í æsku en líkamlegu gjaldþroti mínu.

Fór til Þóru sjúkraþjálfara áðan....kom þaðan úr með massa hausverk.....raðaði í mig parkódíni og íbúfeni þegar ég kom heim....guð blessi verkjatöflurnar!!

En ég hitti hana Jóu mína í dag......hún bjargaði deginum þessi elska, mikið þykir mér vænt um hana:)

Well.......I´m off þið sem nenntuð að lesa.


» 6 hafa sagt sína skoðun

10.01.2006 19:56:42 / 1100cc

Andleg lægð....

Ég er búin að vera í andlegri lægð undanfarna daga....blogga í kvöld eða á morgun:D

Kveðja Inda


» 4 hafa sagt sína skoðun

04.01.2006 18:21:50 / 1100cc

Kvennlega hliðin á mér....

Well well..

Ég fékk matargesti til mín alla leið frá Ástralíu þann 2 janúar. Árdís frænka mín og maðurinn hennar komu tl landsins þann 1 jan. Það var voða gaman að hitta þau, Árdís er hálfsystir mömmu minnar. Nú veit ég að þessi mótorhjólaáhugi minn er mér blóð borinn:) Fólkið mitt þarna úti eru mikið mótorhjólaáhugafólk og Sveinn frændi var meira að segja Presedent í stórum klúbb þarna úti:)

Ég er að láta prjóna á hana lopapeysu eins og ég á, Árdís varð rosa skotinn í peysunni og ég ætla að koma henni á óvart með því að gefa henni svona peysu:)

Þegar ég var búin að skila þeim af mér fór ég í bíó með Önnu M, Dagrúnu og Jónu, voða næs.

Kallinn átti afmæli í gær......33 ára. Hingað streymdu gestir í allt gærkvöld, voða gaman að hitta þetta lið, Magga mín fór á kostum as usual:)

Dagurinn í dag.......Stjáni kom hér nánast í dögun:) til að klára eldhúsinnréttinguna......næstum því búin, sökklar og allt komið upp. Bara smotterí eftir sem  verður klárað á morgun.

Ég fór áðan upp í Baðhús, fór í Lúxus andlitsbað.....wrrrr.....slef.....andlits, háls, herða og eyrnanudd:) Munaði litlu að ég byrjaði að slefa og hrjóta.....afar kvennlegt:haha:

Þurfti svo að fara og versla.....var ekki að nenna því!

Sit núna og læt mér leiðast....fer á sniglafund í kvöld og svo í nudd...sennilega.

Kveð að sinni.


» 4 hafa sagt sína skoðun

02.01.2006 02:45:56 / 1100cc

Gleðilegt ár.....

Gleðilegt ár öllsömul og þakka vinum og ættingjum fyrir það gamla. Langar að koma á framfæri þökkum mínum til vinkvenna minna Sifjar, Önnu Málfríði, Dagrúnu og fleirum kjarnakonum fyrir alla hjálpina á sl ári......veit ekki hvar ég væri án ykkar elskurnar8|

En annars....allt gott að frétta! Vorum í bænum um áramótin og það verður að viðurkennast að það var frekar asnalegt að vera hér í RVK...er ekki vön því. Við vorum bara hérna heima.....Óðinn sofnaði kl 20 í gærkvöldi en hann var vakinn eftir klukkutíma dúr svo hann missti ekki af áramótunum:)  Ég fór með Mikka minn á brennu og honum þótti gaman....en ég varð dálítið hissa....ég hélt að fólk færi á brennur með börnin sín og færu á brennur til að gera þeim til hæfis....fannst rosa mikið um það að sjá fólk með börnin sín en samt blindfullt og ógeðslegt......frekar sorglegt. Þetta tíðkast ekki á sveitabrennunni fyrir norðan....að koma í glasi með börnin á brennu8|

Við fórum upp að Perlu fyrir miðnætti og skutum þar upp með pabba og þeim, voða gaman og ég náði fullt af góðum myndum af strákunum. Eftir það tóku pabbi og þau strákanna með sér heim þannig að við vorum frjáls....kíktum á Eyjó og Döggu....Eyjó var að tapa sér í gleðinni yfir flugeldunum....allaf gaman að sjá Trukkinn breystast í vitfirring:haha: Siggi danski var þarna með krakkana sína og þetta var mjög kósí....fórum svo til Berserkjanna í smá stund......alveg þangað til ég fékk hausverk og fór heim...hitti reyndar Dagrúnu þar þegar ég var að  fara.......og Einar, Önnu  M og Jónu:)

Dagurinn í dag er búin að fara í leti.....náði í strákanna til pabba og var bara heima.....fórum til Evu og Stjána í kvöld.....voða næs:) Símon, Garðar og Tommi komu líka og við kjöftuðum frá okkur allt vit.

Well farin að sofa....

Kveðja Inda.


» 5 hafa sagt sína skoðun

27.12.2005 23:36:22 / 1100cc

Afmælisdagur múttu og ég er lasin....

Ojjj.....fór að finna fyrir þvílíkum slappleika þegar ég kom heim í gærkvöldi.....helltist yfir mig ógleði og þreyta:whut: Svaf þvílíkt illa í nótt og átti í mesta basli við að koma Óa mínum á leikskólann.....kom aftur heim og krassaði í 2 tíma. Baddi fór með Alla til tannsa og loksins er hann komin með góminn.....ekkert smá erfið fæðing það:)

Allavega...ég er búin að vera eins og liðið lík í allann dag:( hundveik og ómöguleg.....mig vantar að sofa í svona 10 tíma án truflana:) Dröslaðist samt upp í toll til að ath með pakkann frá Svanfríði og nú eru þeir hjá póstinum búnir að týna pakkanum....eins fallegt að þetta finnist.....föt upp á 30 þús8| Eva kom í dag....kjaftaði við hana hér í smá stund......Baddi skrapp í sund með Litla hjálparanum:) og svo í kaffi til Evu og Stjána....

Ói....litli ólátabelgurinn minn er búin að uppgvöta klaka og vatnsvélina í ískápnum....honum finnst ægilegt sport að sulla niður klökum og vatni úr vélinni og ég er að verða frekar pirruð á þessu:)

Eins og ég sagði í fyrra blogginu þá er 27 des afmælisdagurinn hennar mömmu. Blessuð sé minning hennar.

Kveð að sinni.....ætla að krassa í sófanum og njóta friðarins

Ps...ég var að skipta um skoðanakönnun.......vert frá því að segja að áhugi fólks á kynlífi er ríkjandi......eða 45% af liðinu setti kynlíf ofar en mótorhjól, jeppum, prjón og hekl og svefn.....:D


» 0 hafa sagt sína skoðun

26.12.2005 00:34:50 / 1100cc

Göngutúrar bæta og kæta....

Sæl og blessuð....nær og fjær:)

Jú jú, ég fann jólaskapið....kannski ekki 100% en allavega 99% :) Verður að duga þessi jól.

Fór í garðinn í gær með pabba, Alla mínum og Bjössa bróðir. Hittum þar Tótu frænku og Matta frænda. Fór svo heim og rak mann og börn út.....tók til og lét anda Mr Proppé svífa yfir mig og saman þrifum við íbúðina. Að sjálfsögðu setti ég svínið í pott ásamt slurp af maltöli og slettu af tomate purre og eins og vanalega þá klikkaði þetta ekki;) Enda er ég snilldarkokkur þótt ég seigi sjálf frá:)

Börnin náttúrulega flippuðu þegar það kom að pakka "upptökunni" Strákarnir fengu hrikalegt magn af gjöfum og það sama má segja um okkur fullorðna fólkið:) Pabbi og þau fóru um kl 21 í gærkvöldi og við góndum á Valient....barnamynd sem Mikki fékk í jólagjöf....eftir hana skellti ég mér í göngutúr....þvílíkt yndislegt. Fór svo ekki að sofa fyrr en kl 4 í nótt en það var í lagi þar sem Ói leyfði mér að sofa til kl 12 í morgun:)

Annars er dagurinn í dag búin að vera rólegur...lagðist á netið og kjaftaði þar í þónokkurn tíma....fór svo í mat til pabba með liðið. Ég var rosa gáfuð og spreyjaði á mig einhverju andskotans ilmvatnsprufu sem við Eva fengum í Kringlunni....nema hvað að það fór svona rosalega illa í mig og ég var flúinn heim í bað langt fyrir áætlaðan heimferðartíma.....og þar sem ég var að fá höfuðverk af bévítans stækjunni þá fór ég í langan langan göngutúr.....yndislegt að ganga í rigningunni (þegar hún er bein niður) einn með sjálfum sér, hugsa um líðandi stund, hvað maður á í lífinu og hvað er framundan. Finnst eins og það séu breytingar í vændum.....væntanlega góðar.

það er eitthvað undarlegt við þessi jól..ég sakna einhvers.....næ bara ekki að festa hönd á það.....finnst eins og það vanti eitthvað. Samt var svín í matinn í gær, hangikjöt í dag og Nói upp í skáp.....allt eins og það er vant að vera:haha:....en samt er eitthvað bogið8| Kannski veit ég hvað málið er.....kannski ekki....erfitt að segja:S Finn að það eru breytingar í vændum......góðar tel ég.

Á morgun...eða sénsagt 27 des er afmælisdagur mömmu heitinnar. Hún yrði 56 ára ef hún væri á lífi.....fær mig til að hugsa hvað það er langt síðan hún dó.....það eru að verða 29 ár. Árdís hálfsystir hennar er væntanleg til Íslands frá Ástralíu 1 janúar. Ég hef aldrei hitt hana og mig hlakkar mikið til sjá hana. Ég hef séð myndir af henni og samkvæmt myndum er hún miklu líkari Gullu (mömmu Svanfríðar frænku) en mömmu minni. Hef stundum spáð í það.....hvað ég er ólík móðurfólki mínu í útliti....en kannski á ég einhverja skapgerðarbresti þangað að sækja:haha::haha: Veit....eins og með Svanfríði frænku....við erum með sláandi líkan húmor.....stundum kolsvartar í gegn:D

En nú er ég að spá í að fara að sofa. Ætla að svitna í ræktinni í fyrramálið.

Kveðja Inda.


» 3 hafa sagt sína skoðun

24.12.2005 01:20:18 / 1100cc

Jólin og hjólin....

Ja....nú er illt í efni...ég er ekki en komin í jólaskapið8| Hlýtur að reddast á morgun....kemur kannski þegar ég rölti í kirkjugarðanna með pabba gamla. Það er hefð sem er ekki vikið frá.....ég fer alltaf að leiði  mömmu, annarra ættingja og vina. Er alveg ónýt ef ég fer ekki í garðinn á aðfangadag.

Annars er svosem margt búið að drífa á minn dag, Óðinn ákvað að vera elskulegur og reka mig ekki á fætur fyrr en kl tæplega 10.....drattaðist þá á lappir, fór með hann á leikskólann og henntist í ræktina.

Svo var það Kringlan...kláruðum síðustu jólainnkaupinn......eða gjafakaupinn.....Baddi fór að hitta Jón Óla sinn....hann er komin heim og slitnaði ekki slefan á milli þeirra upp í húsnæði:)

Á meðan Baddi og Jón Óli góndu hugfangnir á hvorn annann fór ég í Hagkaup og settist á kaffihús í skeifunni með vini mínum í smá stund.....í Hagkaup kláraði ég matarinnkaupinn....ég nenni ekki í bónus fyrir þessi innkaup því það er ekki helmingurinn til af því sem mig vantar, svo Hagkaup varð fyrir valinu:)

En kl 20 sótti Eva mig, ætlunin var að fara á kaffihús...sem við gerðum.....í Kringlunni:haha: Versluðum smá í viðbót.....hittum Möggu mína, Ása, Jóku, Smára og Símon:) Reyndar......ég stóð við afgreiðsluborðið á kaffihúsinu þegar ég fékk 500 kall í andlitið og orð í eyra sem sögðu....fáðu fyrir mig kaffi ef þú færð afgreiðslu, ég ætla að setjast!! Jú jú...Símon á ferð þar:D  Svo kom Magga og settist hjá okkur. Voða fínt allt saman. Ætlaði svo að fara og hjálpa vinkonu minni en hún afboðaði mig á ögurstundu svo ég fékk mér te hjá Eddu í staðinn:)

Lára hringdi.....vantar þig pössun?? ég alveg já!! Svo þessi elska kom og passaði fyrir mig:)

Jæja...best að fara hundskast í háttinn....

Gleðileg jólin öll.

Kveðja Inda.


» 4 hafa sagt sína skoðun

20.12.2005 16:48:36 / 1100cc

Jóla jóla jóla.....crap!!

Ég get nú ekki státað mig að því að jólaandinn sé búin að hella sér yfir mig....er í eins miklu ójólaskapi og mögulega er hægt að vera í.....núna...á ég td að vera skrifa blessuð kortin.....en æ....er ekki að nenna því...um að gera að taka sér smá pásu áður en maður byrjar;)

En hvað um það.....hef reyndar áhyggju af að ég eigi ekki eftir að komast andlega heíl í gengum þessi jól...svosem margar ástæður fyrir því.....ekki mitt að standa í öllum þessum innkaupaleiðangrum.....ekkert gaman að versla nema maður sé með milljón á Matercard og í  góðu molli í USA.

Var í gæslu í gærkvöldi....langri og pínu dösuð eftir hana....var ekki sofnuð fyrr en undir morgun þar sem ég þurfti að lesa blöndunginn þegar ég kom heim;) ....ég get svo svarið það ég veit ekki hvert þetta lið er að fara....enda kannski ekki skrýtið....ég ek ekki á racer:haha: maður þarf að vera sérstaklega viti borinn til að átta sig á þessu liði8| Þetta lið er crazý af því maður vill gott samstarf við lögguna...og af því að maður vill það þá er maður sakaður um að vera sleikja rassgatið á löggunni......og fyrir mitt leyti....sleiki frekar ass-ið á löggunni en ass-ið á þessu snarvankaða liði sem ætlar sér að gera allt brjálað á götum borgarinnar næsta sumar.....þvílíkir sandkassagemlingar8| spurning um að rétta þeim skóflu og sigti.....

Jæja, jólakortin kalla.....hey já...ég talaði við Svanfríði frænku í gær...sennilega næst þetta heim fyrir jól:) Fékk líka sms frá Dagrúnu og í því stóð.....Jæja, búin að fara í VC (Victoria Secret) fyrir þig:) Gleði gleði gleði......

Well I´m off.....og jú annað....Díana er búin að eiga....átti í dag og þau fengu strák, Til hamingju elskurnar:)


» 1 hafa sagt sína skoðun

17.12.2005 16:58:43 / 1100cc

Vild´ég væri dauð....

Það er komin 17 des og ég er ekki einu sinni farin að undirbúa jólin:S Betur má ef duga skal....er bara ekki að nenna þessu.....er til í að gera eins og Gossi....stinga af til kanarí og vera bara full og slafrandi einhverstaðar á ströndinni:haha: Ég hef alltaf sagt þetta.....jólin eru bara til vandræða.....fjárútlát, treður sig út á mat og konfekti, börnin breytast í gráðuga hunda þegar kemur að því að taka upp pakkanna og uppvaskið og eldamennskan bitnar á mér....nema sósugerðin.

Eins og í laginu góða....ég fer alltaf yfir um jólin.....nema það er á geðinu hjá mér....ekki kreditkortinu......vesalings börnin mín að eiga svona ó-jóla-mömmu. Hefði átt að gerast Votti.... nema að ég er ekki nógu rugluð til þess:) (ekki commenta á þetta)

Við fengum óvænt boð á Nínu og Geira í gær....kallinn ákvað að þiggja það og við fórum...flott show og góður matur. Tengdó er í bænum þannig að barnapösunn var ekki vandamál. Baddi og tengdó skelltu sér í Kolaportið í hádeginu og tóku yngsta dýrið með....ég skreið inn í rúm og rotaðist.....þangað til Hjödda hringdi í gsm og spurði.....hva...ertu ekki heima....og ég sagði ha, jú....AF HVERJU SVARAÐRU ÞÁ EKKI....ég ó....er að koma....og þar með var sá lúr búinn:$

Heyrðu...pabbi minn....honum er nú ekki fisjað saman.....hann kom með poka fullann af GRÆNUM ORA BAUNUM áðan...veit ekki alveg hvað ég á að gera við allar þessar baunir....finnst baunir góðar en ég verð árið að éta þessar baunir....kannski ég opni nú Metreiðslubók Nönnu eða Hönnu....eða hvað hún nú heitir og ath hvort það séu ekki til einhverjir réttir sem undistaðan eru grænar baunir.....en allavega...ef einhverjum vantar grænar baunir þá á ég nokkrar dósir sem ég er aflögufær um:)

Skötuveislan er í kvöld hjá Sniglunum....það verður gaman að vita hvernig mætinginn verður....allavega á ég ekki von á útlögunum:haha:......(race-gutta-deildinni) Ætli ég reki ekki nefið inn...með þvottaklemmu fasta á því.....

Knútur hringdi í mig í gær og bað um Trumpann lánaðann til útstillingar í búðinni...hann lofaði að bóna og græja og þar sem ég er latasta manneskja við þrif á hjólunum mínum þá sagði ég slegið.....hvenær viltu hjólið?? :D

Helena er komin.....ætlar að passa í kvöld......tengdó er að fara á jólahlaðborð:)

Ætli það sé ekki best að hysja upp um sig buxurnar og girða æðahnútana ofan í brókina og skella sér í jólaeitthvað......LANGAR AÐ LEGGJAST NIÐUR OG GRENJA ÉG ER SVO EKKI AР NENNA ÞESSU. Samúð væri vel þeginn núna....


» 2 hafa sagt sína skoðun

14.12.2005 15:06:17 / 1100cc

breyttir tímar....

Skapið er eitthvað ögn skárra en það var í gærkvöldi en vá hvað ég er þreytt.....vaknaði náttúrulega alltof snemma að mínu mati....en hey....það þarf víst að koma þessum börnum í skólann8| Lagðist aftur upp í ....en gat ekki sofið svo ég snéri mér að öðru:)

Tengdó kom í bæinn í gær....sem er ágætt þar sem ég er í gæslum í kvöld og annað kvöld. Löng í kvöld.....frá 21:30 - 03.00 og stutt á morgun. Sem er ágætt...á nefninlega að vera mætt til Ása þjálfara kl 11 í fyrramálið og ég ætla ekki að beyla:$

Ég fór til Sif áðan ......hún var að rukka mig um ísátið:haha: Úff ég finn til með henni....það er ógó vont að fara í svona kirtlatöku. Ég sótti svo Óa snemma á leikskólann af því hann er búin að vera slappur.....mældi hann áðan og hann er með 2 kommur...svosem enginn hiti en asminn er að kæfa hann. Alveg óþolandi þessi asmi.

Ég held að ég sé búin að fatta pirringinn í mér...er að fá í augun aftur.....verð alveg öfug þegar það gerist. Tók lyfin mín áðan og ég vona að ég skáni eitthvað....ætla að reyna leggja mig þegar kallinn og tengdó koma heim.

Ég gleymdi alveg.....ég fór á fund út í skóla á mánudaginn og það er komin niðurstaða í málið....strákarnir fara ekki í kennslu til þessa kennara meir og hann fékk VÆNA áminningu frá skólanum og Menntaráði. Ég hefði viljað sjá meiri refsingu eins ÞÚ ERT REKINN....en maður stjórnar víst ekki öllu.

Búin að sækja myndirnar til Agga af Jólaballinu og OMG margar þeirra alveg svaðalegar og alls ekki sýningahæfar.....fékk líka slagsmálamyndirnar af okkur Símoni......oboy....

Sé ykkur.


» 2 hafa sagt sína skoðun

14.12.2005 00:01:59 / 1100cc

Aldrei þessu vant....

Þá er ég frekar geðill núna8| Óðinn er lasinn og það var ekki mikið um svefn hjá mér síðustu nótt. Svo er krakkinn búin að vera kafna úr geðillsku í dag og það er ekki til að bæta geðheilsu mína.

Ég skrapp í Kringluna áðan með Möggu, náði í myndirnar sem eiga að fara í jólakortinn og keypti stíla í rassinn á Óa mínum.....ætla að dæla í hann ef hann gerir sig líklegan til að vakna.

En ég er ferlega þreytt og dösuð......og jú......geðill:$ Ég sem verð aldrei geðill:$

Kveð að sinni....


» 3 hafa sagt sína skoðun

11.12.2005 16:27:23 / 1100cc

Þynnkuraunir .....

Jæja, þá er jólaballið afstaðið og búið:D Rosa gaman en hefði mátt vera aðeins svona eins og 10 hræðum fleiri:) En þetta er eins og alltaf.....mjög góðmennt fyrir utan einn eða tvo:haha:

En ég er búin að komast að því að annað hvort þarf ég að fara leggja drykkjuna fyrir mig alveg eða bara sleppa þessu sulli.....fór alveg á hvolf í gær....en var samt skemmtileg.....hehe eins og alltaf....verð aldrei leiðinleg á detteríi....ég verð ekki leiðinleg fyrr en daginn eftir þegar þynnkan herjar á mig eins og gerðist í morgun.....ég fór á HOT date við postulinið......djöfulsins ógeð:( Svo vorum við Eva pínu alkalegar í gær.....fórum alltaf inn í eldhús til að staupa okkur:D

Ég ætlaði ekki að detta í það en Eva hótaði að drekkja mér í vaskinum í Brautarholtinu svo ég þorði ekki öðru.....á endanum var það ég sem var farin að hóta drekkja henni ef hún færi ekki að herða sig í drykkjunni.....þetta náttúrulega endaði með ósköpum eftir að vera búnar að mana hvern sopann á fætur öðrum ofan í hvor aðra......enduðum upp á sviði að syngja, segja dónalega brandara og gera grín að gestum og gangandi......Eva var meira að segja farin að sveifla brókinni (ekki sinni samt) í endalokin:haha: Siggi svampur gerði útslagið hjá mér þegar hann reif mig upp, snéri mér á hvolf og sveiflaði mér í hringi......þetta gerðist strax á eftir að ég var búin að staupa mig Tópasi með henni Evu svo áhrifin urðu 10x8|  drakk ekki meira af Tópasi það sem eftir lifði kvöldsins....

En djöfull var ég ánægð með hljómsveitina....ungir gaurar......17-19 ára...ferlega hressir og skiluðu sínu listavel....þessir gaurar kalla sig Frelsi og þeir voru ráðnir á staðnum á til að spila á næsta landmóti hjá okkur:D ......skemmir ekki að þeir eru ferlega sætir.....ekki leiðinlegt fyrir okkur stelpurnar að fá svona lambakjöt til að horfa á......Einar og Bjöggi Ploder eru orðnir soldið þreyttir.....:haha:

En nú sit ég hér heima, skítþunn.....get hvorki drukkið né étið með yngsta hvolpinn sofandi á öxlinni.....spurning um að ég halli mér líka:) Var reyndar búin að lofa Sif minni ís en ég kann ekki við að kasta upp hjá henni:/ svo ég held að ég skippi ísnum....svo er nudd í kvöld....verð að reyna koma mér það!

Well...ég er hætt.


» 5 hafa sagt sína skoðun

07.12.2005 17:42:33 / 1100cc

Ótrúlegt að ég skuli vera á lífi......

Jæja.....þvílíkir dagar.

Alexander endaði upp á slysó í gær með brotinn fingur, blóðuga nögl og það blæddi inn á 2 liði.....sénsagt miðliðinn og kjúkuliðinn.

Baddi fór upp á slysó af því að ég var að væflast í ræktinni en fór strax uppeftir, læknirinn sagði að það væri ekki brot í fingrinum en þegar ég fór að skoða myndirnar þá runnu á mig 2 grímur...ég er enginn læknir en ég sá greinilegt brot í fremsta liðnum......og HEIMTAÐI annað álit hjá öðrum lækni .....sem auðvitað sá brotið.

Málavextir voru þeir að hann og annar skólafélagi hans voru á fíflast með einhverja húfu inn á klósetti þegar annar bekkjarfélagi hans (bölvaður gepill) skerst í leikinn og byrjar að reyna læsa Alla inni....og þar sem Alli er eins og mamma sín....með innilokunarkennd þá auðvitað reyndi hann að halda hurðinni en gætti sín ekki nægilega vel og fingurinn varð á milli stafs og hurðar þar sem hjörurnar eru:( Strákarnir tóku ekkert eftir þessu og reyndu að loka hurðinni með öllu sínu afli með fyrrnefndum afleiðingum......strákurinn náttúrulega BRJÁLAÐIST og Soffía aðstoðarskólastjóri fór með hann í leigubíl upp á slysó kolvitlausan.......og honum rann ekki reiðinn fyrr en hann var deyfður8|  Ég verð nú að viðurkenna að þegar það var verið að gera að sárum hans og bora göt á nöglina þá fór um mig hrollur og ég átti bágt með að horfa á þetta......en karlkvikindið hló bara af mér.....spurði hvort ég ætti ekki að vera orðin von þessu spítalastússi:)

En.....ég skrapp svo upp í skóla til að fá nánari útskýringar á þessu ....sem ég fékk! Ræddi svo aðeins um þetta vesen með sundið og leikfimina og nú er ég ALVEG GALLHÖRÐ á því sækja þetta mál áfram og ég hætti ekki fyrr en einhver verður rekinn. Ótrúlegt að fullorðið fólk skuli ekki geta viðurkennt brot sín:klikk: Eins og ég sagði við þetta skólalið....þið vitið ekki hvað þið eruð að kalla yfir ykkur þegar ég er annars vegar....ég er vægast sagt verulega ill yfir þessu.

En annað mál.....ræktin í morgun...tók vel á því og var afar sátt við vigtarskrattann þrátt fyrir smá Remi kex og snakk í gærkvöldi......skamm Garðar;) Nú, svo fór ég með Mikka til augnlæknis og hann fær gleraugu á föstudaginn.....svei mér þá, það var erfiðara að velja á hann glyrnur en sjálfa mig:D Svo var brunað heim, Alla hennt í bað og búið um fingurinn og loks kom Eva og sótti mig......við kláruðum að gera og græja fyrir Jólaballið....og ég verðlaunaði mér með því að kaupa mér skyrtu og dragt.....verð nú að vera eins og manneskja til fara á þessu jólaballi:$

Kl 15 var foreldrakaffi í leikskólanum hjá Óa og ég lenti í því skemmtilega verkefni að föndra einhvern &(&/)/&%&% óróa:D Ég get keyrt vörubíla, trailera, mótorhjól, bíl, jeppa og öll þau farartæki sem eyða bensíni og olíu en þegar kemur að því að klippa út og líma saman pappír þá er ég með 10 þumla:) Kann ekkert að föndra.....viðurkenni það hér og nú. Er ekki ennþá búin að gleyma því þegar Önnurnar reyndu að kenna mér að hekla:haha: tungan út úr öðru munnvikinu af því að einbeitningin var svo mikil og ég mundi af hverju amma gamla gamla gafst upp á að kenna mér að hekla:D

Nú er ég bara að fara sæka Ellen og hundskast upp í Sniglahúsnæði......ætla að þrífa Trumpann (eða neyði Vegalausan til þess)

Sifin mín er að fara í hálskirtlatöku á morgun...... I feel you're pain sister8| Lofa að éta ís með þér þegar þetta er afstaðið.

Jæja....nóg í bili:D


» 5 hafa sagt sína skoðun

06.12.2005 17:21:58 / 1100cc

Skemmtilegur leikur....

1. Ég segi þér eitthvaðað handahófskennt um þig

2. Ég segi þér hvaða lag/bíómynd minnir mig á þig

3. Ég segi þér hvaða bragð minnir mig á þig

4 Ég segi þér fyrstu ljósu minninguna mína af þér

5. Ég segi þér á hvaða dýr þú minnir  mig á

6. Ég spyr þig að einhverju sem ég hef velt lengi fyrir mér um þig 

Sá þennan leik hjá Svanfríði frænku og fannst hann sniðugur...ákvað að taka þátt. Svo endilega verið með....ég skal leiða ykkur í allan sannleikan um ykkur sjálf:)


» 5 hafa sagt sína skoðun

Síður: 1 2 3 ... 15